sagaexternal

Hótel Reykjavík Saga

Lækjargata 12, Reykjavík 101, +354 514 5000

Vefsíða: https://www.islandshotel.is/hotels-in-iceland/hotel-reykjavik-saga/

Nýtt og glæsilegt hótel, Hótel Reykjavík Saga hefur opnað í Lækjargötu. Hótelið ljáir Lækjargötunni nýjan blæ og hönnunin er nútímaleg og klassísk í senn.

Hótel Reykjavik Saga er einstaklega vel staðsett í hjarta miðbæjarins, nokkrum skrefum frá Tjörninni, Dómkirkjunni, listasöfnum og fjölmörgum verslunum og veitingastöðum. Á hótelinu er einnig að finna veitingastaðinn Fröken Reykjavik kitchen & bar. Hótelið skartar jafnframt tveimur glæsilegum og rúmgóðum þaksvölum með frábæru útsýni og glerskála í tengibyggingu sem getur nýst fyrir margvíslegar tegundir af móttökum. Hlýlegt og sólríkt útisvæði er á bak við hótelið með trjám og bekkjum. Á hótelinu er fyrsta flokks líkamsræktaraðstaða og heilsulind með eimbaði og sánu. Aðgengi er mjög gott þar sem rútustæðið er beint fyrir utan hótelið.

#borginokkar