Elvar Örn Kjartansson │Kerfið

Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
18, september 2022 - 11, desember 2022 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 13.00 - 17.00

Vefsíða https://borgarsogusafn.is/ljosmyndasafn-reykjavikur
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Á sýningunni „Kerfið“ leitast Elvar Örn Kjartansson við að draga upp á yfirborðið hið ósýnilega kerfi sem liggur að baki nútíma þægindum og við tökum sem sjálfsögðum hlut.
Frá árinu 2016 hefur Elvar Örn unnið að umfangsmiklu ljósmyndaverkefni þar sem hann hefur heimsótt fyrirtæki og stofnanir á Íslandi og myndað þar ýmis rými. Um er að ræða stórt og flókið kerfi sem samanstendur af mannvirkjum, stofnunum og þjónustufyrirtækjum og óteljandi pörtum sem eru innviðir þess. Hvert og eitt þeirra þjónar sínum sérstaka tilgangi og sér til þess að þjóðfélagið nær að ganga sinn vanagang frá degi til dags og við lifum og hrærumst í því nánast óafvitandi. Það er ekki fyrr en rafmagnið fer af eða þegar netsambandið virkar ekki að við finnum fyrir því en einkum þegar farið er í verkfall í heilu atvinnugreinunum.

Með því að taka fyrir svo víðfeðmt viðfangsefni, sem í senn er óhlutbundið og hlutbundið, og draga það saman í myndrænt samhengi er markmiðið að vekja hinn almenna borgara, áhorfandann, upp úr dvala, ef svo má segja, í átt til meðvitundar um mikilvægi þessara hluta. Með aukinni vitund og virðingu fyrir atvinnugreinum þjóðfélagsins, sem hver um sig er mikilvægur hlekkur kerfisins er verkefninu ætlað að vekja umræðu og spurningar um lifnaðarhætti í fortíð, nútíð og framtíð.
Tímasetning sýningarinnar á einkar vel við út frá birtingarmynd þeirrar utanaðkomandi vár sem Covid-19 hefur verið í íslensku samfélagi undanfarin tvö ár. Reynt hefur mikið á allt kerfið sem við búum við og síendurtekið hefur það t.a.m. ýtt heilbrigðiskerfinu út á ystu nöf þannig að lítið má út af bregða.

Elvar Örn leitast við að hafa myndirnar einfaldar og án fólks. „Fólk kemur og fer en eftir stendur kerfið sem keyrir daginn út og inn – allan ársins hring. Kerfið, sem sér til þess að hinn almenni borgari geti kveikt á ljósunum, hækkað í ofnunum, eldað sér í matinn, kveikt á sjónvarpinu og sturtað niður úr klósettinu án fyrirhafnar.“

Elvar Örn hefur haft ljósmyndun að aðalstarfi síðastliðin fimmtán ár og hafa verk hans á þeim tíma þróast í áttina að abstrakt myndlist.
Elvar hefur verið búsettur í Nuuk á Grænlandi frá 2015 þar sem hann hefur unnið að ýmsum verkefnum og sýningum tengdum veiðimönnum. Árið 2017 ferðaðist Elvar yfir fimm mánuði í kringum Grænland á milli helstu bæja í tengslum við ljósmyndaverkefnið „Piniartoq“. Verkefnið var styrkt af listasjóðum á Grænlandi.

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
uppreisn

#borginokkar