Hádegisleiðsögn: Andlit úr skýjum – mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals

Flókagata 24, 105 Reykjavík

Dagsetningar
Listasafn Reykjavíkur Kjarvalsstaðir
17, ágúst 2022 - 14, september 2022 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 12.15 - 12.45

Vefsíða https://listasafnreykjavikur.is/vi%C3%B0burdir/hadegisleidsogn-andlit-ur-skyjum-mannamyndir-johannesar-s-kjarvals
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Vikulegar hádegisleiðsagnir á miðvikudögum um sýninguna á Kjarvalsstöðum Andlit úr skýjum – mannamyndir Jóhannesar S. Kjarval .

Andlitsmyndir Kjarvals hafa skipað veglegan sess á yfirlitssýningum á verkum listamannsins og samsýningum af ýmsu tagi en til þessa hefur sjónum ekki verið beint að þessum myndum sérstaklega.

Á sýningunni eru verk víða að, jafnt úr Kjarvalssafneign Listasafns Reykjavíkur, frá Listasafni Íslands og frá einkasöfnurum sem góðfúslega hafa lánað verk sem mörg hver hafa aldrei komið fyrir almenningssjónir.

Öll velkomin!

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar