Sögur | Tónsmíðar

Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Grófinni
02, október 2022
Opið frá: 13.00 - 15.00

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/born/sogur-tonsmidar
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Borgarbókasafnið í samstarfi við Sögur- Verðlaunahátíð barnanna býður börnum að læra að búa til sitt eigið lag undir leiðsögn Jóhannesar Ágústs.
Námskeiðið er þrjú skipti, sunnudagana 2., 9. og 16. október.

Opnað verður fyrir skáningu 1. september.

Dagskrá:
2. október: Farið er yfir grunn í tónlistar- og textagerð og í hugmyndavinnu. (13:00-15:00)
9. október: Börnin vinna að tónlist sinni í minni hópum (1 tími einhvern tíma á milli 13:00-16:30)
16. október: Börnin leggja lokahönd á lagið sitt og undirbúa það til sendingar í samkeppni Sagna (1 tími einhvern tíma á milli 13:00-16:30)

Í lok námskeiðsins eru börnin hvött til þess að taka þátt í samkeppni Sagna. Eftir áramót verða þrjú lög valin og þau börn tækifæri að fullvinna lagið sitt með pródúsent og tónlistarmönnum. Lögin þrjú verða flutt á verðlaunahátíð Sagna næsta vor í beinni útsendingu á RÚV. Það er því til mikils að vinna!

Jóhannes Ágúst Sigurjónsson lauk B.A. námi í lagaskrifum og pródúseringu við Linnéuniversitet í Svíþjóð og starfar við tónlistargerð á Íslandi.

Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar