Litaprufur | Sýning

Hraunbær 119, 110 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ
07, júlí 2022 - 02, október 2022 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 16.00 - 19.00

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/syningar/litaprufur-syning
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Bergþór Gunnarsson sýnir olíumálverk á striga.

Á sýningunni er málverkasería þar sem Berþór leitast við að gera sérstaka litapallettu fyrir hvert verk. Við vinnuna notaði hann m.a. nokkrar breiddir af límbandi sem auðveldaði honum verkið við myndbygginu og formsköpun. Stærð allra verkanna er 90x90 cm en eftir nokkra athugun þá kom sú stærð best út fyrir þá abstrakt nálgun sem notuð er við verkin. Að sögn Bergþórs hefur vinnuferlið hjálpað honum við að ná sér á strik eftir kulnun og síþreytu sem hann hefur átt við að glíma að undanförnu. Vinnuþrekið fór úr um 20 mínútum í 2-3 tíma á dag.

Bergþór útskrifaðist með B.A. gráðu í myndlist AKI- Akademie voor Beeldende Kunst í Enschede, Hollandi árið 1996. Um árabil sinnti hann ekki myndlistinni en hefur undanfarin sex ár verið að endurnýja kynni sín við listagyðjuna.

Svipaðir viðburðir

uppreisn
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar