Kvöldganga | Silli og Valdi – „af ávöxtunum skulu þjer þekkja þá“

Aðalstræti 10, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarsögusafn
30, júní 2022
Opið frá: 20.00 - 21.30

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/bokmenntalandslagid/kvoldgongur-i-reykjavik
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Silli og Valdi – „af ávöxtunum skulu þjer þekkja þá“ er yfirskrift kvöldgöngu á vegum Borgarsögusafns sem Helga Maureen Gylfadóttir sagnfræðingur leiðir fimmtudaginn 30. júní kl. 20.

Ein þekktasta verslun sem starfrækt hefur verið í Aðalstræti 10 var nýlenduvöruverslun Silla & Valda á árunum 1927-1975. Verslunina ráku félagarnir Sigurliði Kristjánsson (1901-1972) og Valdimar Þórðarson (1905-1981) en þeir voru umsvifamiklir kaupmenn og ráku auk þess um tíma tíu aðrar verslanir víðsvegar í Reykjavík. Þeir áttu einnig fjölda eigna, meðal annars í Grjótaþorpinu en auk þess reistu þeir verslunarhúsnæði í Austurstræti 17 árið 1964 og Glæsibæ árið 1972.

Silli og Valdi voru báðir mótaðir af sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar í uppvexti og töldu að öflug innlend verslun og þjónusta væri samfélaginu nauðsynleg. Þeir voru mjög samhentir í starfi, unnu mikið en voru ekkert að slá um sig. Þeir urðu snemma þekktir fyrir nýstárlegar auglýsingar sínar í blöðum og kjörorð þeirra Af ávöxtunum skulu þjer þekkja þá varð landsfrægt.

Gangan hefst við Aðalstræti 10 kl. 20. Þátttaka er ókeypis og öllum velkomin. Gengið verður um slóðir Silla og Valda í miðbæ Reykjavíkur og saga verslunarveldis þeirra rakin.

Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarsögusafn, Borgarbókasafn og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir. Göngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum yfir sumarmánuðina. Upplýsingar um allar göngurnar er að finna á vef Borgarbókasafnsins og á Facebooksíðunni, Kvöldgöngur.

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar