Guitar Islancio with Unnur Birna (IS)

Austurbakki 2, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Harpa
17, ágúst 2022
Opið frá: 21.45 - 22.45

Vefsíða https://reykjavikjazz.is/en/vidburdir/guitar-islancio-with-unnur-birna-is/
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Athugið! Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar í Hörpu en hann veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá í Hörpu.
Á þessum tónleikum munu þeir félagar Í Guitar Islancio minnast franska fiðluleikarans Didier Lockwood sem lék með þeim eftirminnilega tónleika á Jazzhátíð Reykjavíkur árið 2001, en hann lést árið 2018 aðeins 62 ára gamall. Í sinni stuttu heimsókn hingað hreifst hann af landinu og langaði alltaf að koma aftur og það stóð svo sannarlega til, því þegar hann lést var í gangi undirbúningur að tónleikum með honum og Guitar Islancio hér á landi og fyrirhugaðar hljóðritanir.
Efnisskrá tónleikanna á jazzhátíðinni verða lög sem tríóið og Didier léku á áðurnefndum tónleikum og ýmislegt annað, bæði nýtt efni sem Guitar Islancio hefur verið að vinna að undanfarið og íslensk þjóðlög sem hafa fylgt tríóinu frá upphafi og víst er að með Unni Birnu mun Guitar Islancio mynda notalega stemmningu sem heiðrar minningu þessa mikla meistara jazz-fiðluleiksins.
Björn Thoroddsen : gítar
Jón Rafnsson : bassi
Þórður Árnason : gítar
Unnur Birna Björnsdóttir : fiðla
Sjá nánar um Guitar Islancio á www.guitarislancio.is

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar