Sumarútgáfan með Sunnu Dís

Sólheimar 23, 104 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Sólheimum
02, júní 2022
Opið frá: 17.30 - 18.30

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/bokmenntir/sumarutgafan-med-sunnu-dis-1
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Vantar þig innblástur fyrir sumarlesturinn? Á höfundaspjalli í Borgarbókasafninu Sólheimum gefst stórgott tækifæri til að fylla rækilega á lestrarlistann fyrir sumarið. Sunna Dís Másdóttir stýrir spjalli við þau Heiðu Vigdísi Sigfúsdóttur, Ingunni Snædal, Rebekku Sif Stefánsdóttur og Þórarin Eldjárn um nýlegar bækur þeirra og sumarlestur almennt.

Þórarinn sendi nýlega frá sér ljóðabókina Allt og sumt, en þær Heiða Vigdís og Rebekka eru báðar nýjar höfundaraddir sem sendu frá sér sínar fyrstu bækur nú í vor. Getnaður eftir Heiðu Vigdísi bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir, og fyrsta skáldsaga Rebekku, Flot, kom nýlega út hjá Króníku. Ingunn Snædal mætir til leiks með spennandi þýðingar í farteskinu, en á árinu hafa komið út í hennar þýðingu glæpasögur eftir Angelu Marsons, Richard Osman og Söru Blædel og Mads Peder Nordbo, og skáldsagan Fagri heimur hvar ert þú? eftir Sally Rooney.

Að auki munu allir þátttakendur mæla með vænlegum bókum til yndislestrar í sumar - það mun því ekki skorta innblásturinn.

Hvítvín verður á boðstólum og sumar í lofti!

Viðburðurinn hefst klukkan 17:30 og lýkur kl 18:30. Öll velkomin.

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar