Bítta Selja Kaupa: Borðspilamarkaður
21, maí 2022
Opið frá: 13.00 - 15.00
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Stórskemmtilegur dagur í Spilavinum framundan! Borðspilamarkaður og BarSvar.
Borðspilamarkaðurinn er á milli kl. 13-15: Bítta, selja, kaupa. Kjörið tækifæri til að losa skápinn, og finna gimsteina sem verið er að losa.
Borðspila-BarSvar (e. pub quiz) kl. 19:30 í kaffihúsinu okkar, Spilakaffi verður skemmtileg spurningakeppni. 1.000 kr. á mann, Viking bjór eða kaffidrykkur fylgir með. 1-4 saman í liði. Sigurliðið fær 10.000 kr. inneign í Spilavinum í verðlaun.