D46 Ásgerður Birna Björnsdóttir: Snertitaug

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús
28, janúar 2022 - 20, mars 2022 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 10.00 - 17.00

Vefsíða https://listasafnreykjavikur.is/syningar/d46-asgerdur-birna-bjornsdottir-snertitaug
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Verk Ásgerðar Birnu eiga sér stað á breiðum efnislegum skala; örfínar agnir, kílómetrar af rafmagnsvír, línudans á mörkum þess áþreifanlega og ósnertanlega. Á sýningunni setur hún fram verk sem best er lýst sem ljóstillífandi innsetningu. Sólarrafhlöður safna í sig orku sem knýja áfram vídeó-verk. Birtuskilyrði og hækkandi sól stýra því hvernig verkið birtist dag frá degi. Málmsteyptir skúlptúrar í formi lífrænna greina bera uppi rafmagnssnúrur sem flytja orkuna frá einum stað til annars. Spírandi valhneta getur af sér grænar greinar. Sjónum er beint að flæði og ferðalagi orku og varpar ljósi á samlífi náttúru og tækni, þess lífræna og stafræna. Ekkert á sér stað í tómarúmi og allt er öðru háð. Virknin býr í ögnum, bylgjum og annarri orku á milli og handan heima.

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar