Klúbbur I Harry Potter fyrir 9-12 ára I Sólheimar

Sólheimar 23, 104 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Sólheimum
09, febrúar 2022 - 18, maí 2022 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 14.30 - 16.00

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/born/klubbur-i-harry-potter-fyrir-9-12-ara-i-solheimar
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

ATHUGIÐ að klúbburinn byrjar 26. janúar og skráning er nauðsynleg.
Aðdáendur Harry Potter koma saman til að spila, spjalla, teikna, föndra, horfa á Harry Potter myndir eða hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera.
Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 9-12 ára.
Einnig er boðið upp á skemmtilegar smiðjur, s.s. Quidditch kennslu, tálgun töfrasprotagerð, búningagerð o.fl.
Klúbburinn er á hverjum miðvikudegi kl. 14.30-16.00 í Borgarbókasafninu Sólheimum og aðeins fyrir meðlimi.
ATHUGIÐ að einnig er klúbbur í Borgarbókasafninu Gerðubergi fyrir 13-16 ára á fimmtudögum kl. 16.30-18.00.
Leiðbeinendurnir eru mestu Harry Potter aðdáendur safnsins og tökum við vel á móti öllum krökkum.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald og opnað verður fyrir skráningar hér á síðunni innan tíðar.
Nánari upplýsingar:
María Þórðardóttir og Sigrún Jóna Kristjánsdóttir
maria.thordardottir@reykjavik.is
sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
uppreisn

#borginokkar