Jólabragur í Borgarbókasafninu

Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Grófinni
04, desember 2021
Opið frá: 13.30 - 15.30

Vefsíða https://www.borgarbokasafn.is/vidburdir/bokmenntir/jolabragur-i-borgarbokasafninu-0
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Borgarbókasafnið Grófinni 4. des og í Árbæ 5. desember.
Margrét Eir syngur jólalög, Þórarinn Eldjárn, Eva Rún Snorradóttir og Hildur Knúts lesa úr bókum sínum og föndurstund fyrir alla fjölskylduna.
4. desember (Grófin)
Kl. 13:30 Hildur Knútsdóttir les úr bók sinni Nú er nóg komið
Kl. 13:45 Eva Rún Snorradóttir les úr bók sinni Óskilamunir
Kl. 14:00 - 14:45 Margrét Eir og hljómsveit leika jólalög.
Kl. 13:30-15:30 Jólaföndur með Sigurrós
5. desember (Árbæ)
Kl. 13:30 Hildur Knútsdóttir les úr bók sinni Nú er nóg komið
Kl. 13:45 Þórarinn Eldjárn les úr bók sinni Umfjöllun
Kl. 14:00 - 14:45 Margrét Eir og hljómsveit leika jólalög.
Kl. 13:30-15:30 Jólaföndur með Sigurrós
Margrét Eir söngkona kemur fram ásamt hljómsveit og ætla þau að spila nokkur af okkar allra dásamlegustu jólalögum.
Hildur Knútsdóttir verður með upplestur úr bók sinni Nú er nóg komið, Eva Rún Snorradóttir verður með upplestur úr bók sinni Óskilamunir (á laugardeginum) og Þórarinn Eldjárn úr bók sinni Umfjöllun (á sunnudeginum). Einnig verður jólaföndurstund þar sem hægt er að gera t.d. falleg jólatré úr gömlum kiljum.
Með Margréti Eir söngkonu spila þau Sunna Gunnlaugsdóttir píanó, Scott McLemore trommur og, Leifur Gunnarsson á kontrabassa.
Þórarinn Eldjárn mun lesa úr nýútkominni bók sinni Umfjöllun sem geymir átta snjallar og bráðskemmtilegar sögur úr fortíð og samtíð. Sumar stuttar og langar, sögupersónur eru eftirminnilegar og umfjöllunarefnin fjölbreytt.
Eva Rún Snorradóttir mun lesa úr bók sinni Óskilamunir, sögur um ástir sem finnast og tapast, hvernig sársauki mótar okkur, um allt það sem brotnar en ekki síst brotin sem enginn vitjar. Hvernig við leitum með veiku ljósi að leið í gegnum þetta ævarandi grímuball sem lífið er.
Hildur Knúts les úr bókinni Nú er nóg komið! sem hún skrifar með Þórdísi Gísladóttur og fjallar um stelpur í 8. bekk sem þurfa að endurskoða öll sín áform þegar óvæntur heimsfaraldur mætir til landsins. Þó að þær þurfi að húka heima í sóttkví er alveg óþarfi að láta sér leiðast! Það má alltaf finna sér óvænt verkefni, eins og að reka sjoppu eða njósna um dularfulla nágranna sem virðast hafa eitthvað óhreint í pokahorninu.
Föndurstundin er í höndum Sigurrósar Jónsdóttur bókavarðar og föndurmeistara og ætlar hún að kenna hvernig er hægt að búa til falleg jólakort og merkispjöld úr pappírsafgöngum og föndurpappír. Allur efniviður verður á staðnum.
Hlökkum til að sjá ykkur. Aðgangur ókeypis.
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
uppreisn

#borginokkar