Dónajól

Tryggvagata 22, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Gaukurinn
01, desember 2021
Opið frá: 20.00 - 22.30

Vefsíða //www.bergmal.band
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Hljómsveitin Bergmál mun vera með tónleikana Dónajól
Sprenghlægilegir jólatónleikar sem koma ykkur í rétta jólasköpin!!
Hljómsveitameðlimir eru þær Selma Hafsteinsdóttir og Elísa Hildur Þórðardóttir og blanda þær saman húmor við lagasmíðina.
Markmiðið er að hafa gaman, hlæja og taka lífinu ekki of alvarlega
Dömurnar hafa gefið út nokkur jólalög og þar má nefna:
- Askasleikir
- Heilög fæðing
- Uppstúfur
- Ástarævintýri Grýlu
Öll þessi lög er að finna á spotify!
https://open.spotify.com/album/1Mwe8wvsu3ZjCubF4YzUEb...
https://open.spotify.com/album/1URkjU9SsiEguVMTsXy05C...

Einnig eru þær með ógrynni af dásamlegum slögurum sem þær munu taka á Dónajólunum.
Þetta eru jólatónleikarnir sem þú mátt alls ekki missa af!
Skyldi það vera Dónajól?

Tónleikarnir byrja kl 20:00
Það kostar 3.000kr og miðasala er við innganginn!

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
uppreisn

#borginokkar