Listin talar tungum: Leiðsögn á þýsku um sýninguna Ferðagarpurinn Erró

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús
28, nóvember 2021
Opið frá: 13.00 - 14.00

Vefsíða https://listasafnreykjavikur.is/vi%C3%B0burdir/listin-talar-tungum-leidsogn-thysku-um-syninguna-ferdagarpurinn-erro
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Myndlistarmaðurinn Lukas Bury verður með leiðsögn á þýsku um sýninguna Ferðagarpurinn Erró í Hafnarhúsi.
Ókeypis er á viðburðinn. Athugið að skráning er nauðsynleg HÉR: https://bit.ly/3qPYzZ9
Ferðalög eru einkennandi fyrir líf og list Errós (f. 1932). Hann stundaði listnám í Reykjavík, Ósló, Ravenna og Florence, þar til hann settist að í París árið 1958 eftir nokkurra mánaða dvöl í Ísrael. Mörg ferðalög fylgdu þar á eftir og má nefna sögulegar ferðir til New York í Bandaríkjunum, Moskvu í þáverandi Sovétríkjunum og Havana á Kúbu. Í heimsreisu sinni, 1971-1972, lá leið hans um Asíu. Frá því á 8. áratugnum hefur Erró skipt búsetu sinni milli Parísar í Frakklandi, Bangkok í Taílandi og Formentera á Spáni.
Ferðalög Errós gegna mikilvægu hlutverki í tilurð verka hans. Hvert sem hann fer sankar hann að sér hundruðum mynda. Hann nýtir þær í samklippuverk sem smám saman verða að málverkum. Hugmyndin um ferðalög og tilfærslur birtist í mörgum verkum, þar sem hann notar mótíf eins og flugvélar, eldflaugar, lestir, fugla, hesta eða jafnvel ofurhetjur. Hún kemur enn fremur skýrt fram í seríum sem varða „heimsferð Maós“, „geimferðir“ og „konur frá Norður Afríku“.
Öll verkin eru í eigu Listasafns Reykjavíkur.
Listin talar tungum er hluti af samstarfsverkefninu Tökum höndum saman á vegum Borgarsögusafns og Listasafns Reykjavíkur sem hlaut af Öndvegisstyrk Safnasjóðs.

Svipaðir viðburðir

uppreisn
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar