D44 Claire Paugam: Tilraun til faðmlags nr. 31

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús
28, október 2021 - 05, desember 2021 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 10.00 - 22.00

Vefsíða https://listasafnreykjavikur.is/syningar/d44-claire-paugam-tilraun-til-fadmlags-nr-31
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Claire Paugam er 44. listamaðurinn til að sýna í sýningarröð Listasafns Reykjavíkur í D-sal. Á sýningunni setur Claire fram sýn af stórkostlegu landslagi. Sýningarsalurinn virkar eins og útsýnispallur, með bekk fyrir miðju gagnvart landslagi sem gæti verið raunverulegt. En ekki er allt sem sýnist. Í verkum sínum vinnur hún ítrekað með þætti eins og formleysu, óreiðu og að láta af stjórn. Hér veltir hún fyrir sér mörkum líkama, landslags og náttúru og spyr spurninga eins og: Hvar staðsetjum við okkur gagnvart/í landslagi? Hvar liggja mörk líkamans og landslagsins? Claire er hugfangin af þess háttar millibilsástandi; hvað er fyrir utan og hvað er fyrir innan, hvað er og hvað er ekki, og notar myndrænan samanburð til að tjá hugmyndir sínar og ímyndun.

Claire Paugam er fædd árið 1991 í Frakklandi og í dag býr hún og starfar í Reykjavík.

Svipaðir viðburðir

uppreisn
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar