The Little Match Girl Passion

Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Fríkirkjan í Reykjavík
07, nóvember 2021
Opið frá: 17.00 - 18.00

Vefsíða https://operudagar.is/en/operudagar-i-fjarlaegd/vidburdir/little-match-girl-passion/
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

David Lang er eitt mest flutta núlifandi tónskáld Bandaríkjanna en á tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík, Selfosskirkju og Akureyrarkirkju verður verk hans, Little Match Girl Passion á dagskrá sem og sálmar eftir Hildigunni Rúnardóttur.
7. nóvember - Fríkirkjan í Reykjavík
9. nóvember - Selfosskirkja
10. nóvember Akureyrarkirkja
Miðasala er á tix.is
Flytjendur eru:
Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran
Guja Sandholt, alt
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór
Oddur Arnþór Jónsson, bassi
Aðstandendur Óperudaga stóðu fyrir íslenskum frumflutningi á verki Langs á Ljóðadögum Óperudaga árið 2019 en þá var tónskáldið sjálft viðstatt tónleikana. Nú, tveimur árum síðar, viljum við gjarnan leyfa því að hljóma hér á ný en auk þess að flytja það í Reykjavík, verðum við með nokkra tónleika á landsbyggðinni í samstarfi við Tónaland.
David Lang hlaut Pulitzer-verðlaunin árið 2008 fyrir verkið Little Match Girl Passion en efniviðinn sótti hann í söguna um Litlu stúlkuna með eldspýturnar eftir H.C.Andersen sem og Mattheusarpassíu J.S.Bach.
Um verkið hefur David Lang skrifað sjálfur:
„Ég vildi segja sögu - þessa sérstöku sögu um Litlu stúlkuna með eldspýturnar eftir danska rithöfundinn Hans Christian Andersen. Upprunalega sagan er að því er virðist fyrir börn og í henni birtist átakanlegur samtvinningur af hættu og siðferði sem finna má í mörgum barnasögum. Ung stúlka sem verður fyrir barsmíðum frá föður sínum og reynir án árangurs að selja eldspýtur á götunni. Enginn virðir hana viðlits og hún frýs til dauða. Í gegnum þrautirnar þó ávallt skín kristilegur hreinleiki stúlkunnar í gegn en saga hennar er ekki falleg.
Það sem dró að verkinu er það að styrkur þess liggur ekki í söguþræðinum sjálfum heldur þeirri staðreynd að í öllum þáttum - hörmunginni og fegurðinni - skiptast andstæður stöðugt á. Napurleg staða stúlkunnar er lituð af ljúfum minningum frá fortíðinni og í fátækt hennar finnst líka gnægð vonar. Á milli þjáningarinnar og vonarinnar er einhvers konar barnslegt jafnvægi. Verkið mitt heitir Passía litlu stúlkunnar með eldspýtunnar en þar er saga H.C.Andersen sett fram á svipaðan hátt og Mattheusarpassía J.S.Bach [...]. Textinn er eftir mig sjálfan en fyrirmyndirnar eru textar eftir H.C. Andersen, H.P Paulli (sem þýddi söguna fyrst á ensku árið 1872), Piander, textahöfund Mattheusarpassíu Bachs sem og Mattheusarguðspjallið. Orðið passía á rætur sínar að rekja til latneska orðsins yfir þjáningu. Það er enginn Bach í verkinu mínu og enginn Jesús - þjáningu litlu stúlkunnar hefur verið skipt út fyrir þjáningu Jesú og þannig lyft upp (að ég vona) á hærra plan“.

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
uppreisn

#borginokkar