PLAKAT UNGLISTAR
11, nóvember 2021
Opið frá: 17.00 - 19.00
Vefsíða
//www.unglist.is
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Sýning á feikifínum og fjölbreyttum tillögum að plakati Unglistar sem nemendur á 1. ári í Grafískri hönnun við LHÍ útfærðu í vor. Sýningin stendur til 27/11.
Sýningin er hluti af Unglist, listahátíð ungs fólks sem er vettvangur fyrir ungt upprennandi listafólk þar sem skáldskapur og myndsköpun fá að flæða frjálst, í takti við tónlistarveislur, óheftan dans, lifandi leiklist og aðra viðburði þar sem sköpunargleðin er í öndvegi. Unglist er hátíð nýrra strauma og fjölbreytileika. Taktu þátt í ævintýrinu þér að kostnaðarlausu og njóttu töfra listarinnar á ókeypis viðburðum Unglistar!