Karólína vefari │Sýning í Kornhúsinu

Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Árbæjarsafn
15, maí 2021 - 14, maí 2024 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 13.00 - 17.00

Vefsíða https://borgarsogusafn.is/arbaejarsafn/syningar/karolina-vefari
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Karólína Guðmundsdóttir (1897-1981) lærði vefnað í Kaupmannahöfn og rak um áratugaskeið vefstofu við Ásvallagötu í Reykjavík. Karólína óf húsgagnaáklæði og gluggatjöld fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili, þar sem litir og áferð féllu vel að umhverfinu. Útsaumsjafi hennar var notaður í skólahandavinnu um árabil auk þess sem útsaumuð veggteppi og púðar frá vefstofunni prýddu mörg íslensk heimili. Þannig hafði Karólína áhrif á híbýlaprýði og smekk landsmanna, auk þess sem henni tókst að auka veg og virðingu íslensku ullarinnar og breyta viðhorfum til handverks og hannyrða.

Karólína vann við vefnað í rúm 50 ár, fyrst sem einyrki en síðar sem atvinnurekandi og fyrirvinna. Hún kenndi einnig hannyrðir og var formaður Heimilisiðnaðarfélags Íslands 1923 til 1927. Karólína bjó yfir mikilli þekkingu á möguleikum vefstólsins og útfærslu munstra. Vandvirkni, nákvæmni og fallegt samspil lita og munsturs einkenna verk hennar, fagurfræði og notagildi voru jafngild. Karólína kom fram með vandað handverk, nýstárlegan vefnað, þar sem íslenskum handverkshefðum var fléttað saman við alþjóðlegar hræringar í hönnun og handverki. Með sýningu þessari eru verk Karólínu sett í öndvegi og framlag hennar til handverks og hönnunar dregið fram. Sýningin er samstarfsverkefni Borgarsögusafns Reykjavíkur og Heimilisiðnaðarfélags Íslands og byggir á rannsóknum á vegum Borgarsögusafns.

Svipaðir atburðir

Neyzlan – Reykjavík á 20. öld | Árbæjarsafn
Reykjavík ... sagan heldur áfram│Aðalstræti 10
Christopher Taylor │ Nálægð
Jón Helgi Pálmason │Á meðan myndin dofnar
Komdu að leika! | Árbæjarsafn
Lífið á landnámsöld
Músíktilraunir 1. undankvöld
Leiðsögn │ Árbæjarsafn
Músíktilraunir 2. undankvöld
Kvikmyndakaffi | Aðlögun og ummyndanir
Ada Stańczak keramikhönnuður í vinnustofudvöld

#borginokkar