Forritaðu þinn eiginn tölvuleik!

Grandagarður 8, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Sjóminjasafnið í Reykjavík
19, september 2021
Opið frá: 13.00 - 15.00

Vefsíða https://borgarsogusafn.is/sjominjasafnid-i-reykjavik
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Hvern langar ekki að geta skapað og forritað sinn eiginn tölvuleik? Sunnudaginn 19. september fá krakkar á aldrinum 7-12 ár að kynnast forritunarumhverfinu Scratch. Þar er geta þau smíðað sinn eiginn tölvuleik og leyft ímyndunaraflinu að njóta sín undir handleiðslu þjálfara frá Skema í HR. Þátttakendur tileinka sér grunnforritun, forritunarlega hugsun, röð aðgerða og ýmis forritunarhugtök og geta þannig haldið áfram að skapa þegar heim er komið. Á meðan smiðjunni stendur geta forráðamenn kíkt á sýningar safnsins (kostar 1.800 kr. inn fyrir fullorðna) eða bara notið þess að rölta um Grandann og alls þess sem hann hefur upp á að bjóða.

Smiðjan tekur 2 klst, er gjaldfrjáls og hentar vel aldursbilinu 7-12 ára. Engar hæfniskröfur varðandi tölvufærni eða þekkingu á forritun. Læsi er þó skilyrði. Aðeins 15 pláss eru í boði og þarf að skrá börnin í síma 411-6340. Smiðjan er hluti af viðburðaröðinni: Fjölskylduhelgar Borgarsögusafns.

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar