Tjarnarburlesk

Tjarnargata 12, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Tjarnarbíó
22, júlí 2021 - 16, september 2021 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 20.00 - 22.00

Vefsíða https://tix.is/is/event/11774/tjarnarburlesk/
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Gleði- og fjöllistahópurinn Dömur og herra býður þér á sjóðheitt, löðrandi sætt og örlítið sóðalegt búrlesk á sumardagskrá Tjarnarbíós. Hér gefst fullkomið tækifæri til að skyggnast inn í fjölbreyttan heim jaðarlista á Íslandi þar sem á matseðlinum er bæði galsafengið grín og kynþokkafull kæti. Hópurinn samanstendur af listafólki á ýmsum aldri með ólíkan bakgrunn sem deilir ástríðu fyrir því að skemmta sér og öðrum meðfram því að skora staðlaðar hugmyndir um fegurð og þokka á hólm.

Kafuppselt var á sýningu hópsins á Reykjavik Fringe hátíðinni á dögunum svo tryggið ykkur miða í tíma!

Að vanda er sýningin ekki við hæfi áhorfenda yngri en 18 ára eða þeirra sem eru viðkvæmir fyrir fegurð mannslíkamans.

Svipaðir viðburðir

uppreisn
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar