Orðagull: sagna- og ritlistarnámskeið

Spöngin 41, 112 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Spönginni
19, október 2021 - 16, nóvember 2021 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 17.00 - 18.30

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/fraedsla/ordagull-sagna-og-ritlistarnamskeid
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Ólöf Sverrisdóttir, leikkona, sögukona og með MA í ritlist, heldur sagna- og ritlistarnámskeið Orðagull.

Alla þriðjudaga frá 19. október til og með 16. nóvember kl. 17:00-18:30

Ólöf hefur boðið upp á þessi vinsælu námskeið undanfarna vetur með mismunandi áherslu í hvert sinn. Að þessu sinni verður blandað saman sagnalist og ritlist með áherslu á sögur úr eigin lífi. Rifjaðir verða upp áhugaverðir eða eftirminnilegir atburðir úr lífi þátttakenda og í leiðinni er farið í undirstöðuatriði í sagnalist. Kynntar verða ýmsar aðferðir sem hjálpa fólki í að ramma sögurnar inn og gæða þær lífi og litum.

Í framhaldi af þessu verða sögurnar skráðar og farið í nokkur atriði varðandi ritlist. Námskeiðinu lýkur með uppskeruhátíð á degi íslenskrar tungu.

Engar kröfur eru gerðar um fyrri reynslu við ritlist. Allir eru velkomnir, byrjendur og lengra komnir.

Hámarksfjöldi þátttakenda: 16
Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg. Hægt er að skrá sig í smiðjuna í gegnum síðu Borgarbókasafnsins, skráning hefst 30. júlí.

Nánari upplýsingar:
Ólöf Sverrisdóttir, verkefnastjóri
olof.sverrisdottir@reykjavik.is | 411 6230 / 664 7718

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar