Lífveruleit í Laugardalnum í sumar

Holtavegur 32, 104 Reykjavík

Dagsetningar
Grasagarður Reykjavíkur
08, júlí 2021 - 31, ágúst 2021 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 10.00 - 21.00

Vefsíða http://grasagardur.is
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Í sumar stendur gestum Grasagarðsins og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins til boða að taka þátt í lífveruleit í lífríki Laugardalsins.

Alls konar lífverur, dýr, plöntur og sveppir hafa valið Laugardalinn sem sín heimkynni. Þá er átt við þær lífverur sem eru þar á eigin vegum, ekki plönturnar sem eru ræktaðar í Grasagarðinum eða húsdýrin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þetta eru t.d. þrestirnir í trjánum, ánamaðkarnir í moldinni, hunangsflugurnar sem suða í blómabeðunum, fíflarnir sem vaxa upp úr stéttinni og svo framvegis. Það opnast fyrir manni heill heimur þegar grannt er skoðað. Alls staðar finnur lífið sér pláss.

Til að taka þátt í lífveruleitinni má nálgast fróðleiksspjöld, annað hvort á kaffihúsinu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, eða í anddyri garðskálans í Grasagarðinum. Spyrjið starfsfólkið ef þið finnið ekki spjöldin. Á spjöldunum eru nokkur einföld verkefni/viðfangsefni þar sem þátttakendur eru hvattir til að leita að ákveðnum gerðum lífvera og velta fyrir sér nokkrum áhugaverðum spurningum. Verkefnin henta fólki á öllum aldri.

Lífveruleitin er samstarfsverkefni Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, Grasagarðs Reykjavíkur og Reykjavík-iðandi af lífi en hið síðastnefnda er sérstakt fræðsluátak um líffræðilega fjölbreytni í borginni.

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
uppreisn
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar