Saumaverkstæðið | Aðstoð við saumaskapinn

Hraunbær 119, 110 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Árbæ
06, september 2021 - 06, desember 2021 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 16.30 - 18.00

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/fraedsla/saumaverkstaedid-adstod-vid-saumaskapinn
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Á saumaverkstæðinu er boðið upp á aðstoð eða ráðgjöf frá fagmönnum einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Ekki verður saumað fyrir þá sem ætla að nýta sér aðstoðina heldur fá þeir einungis ábendingar og góð ráð um það hvernig best sé að bera sig að ásamt kennslu á saumavélarnar.

Andzelina Kusowska Sigurðsson og Elínborg Ágústsdóttir verða gestum innan handar.

Upplagt fyrir þá sem eru að velta einhverju fyrir sér varðandi saumaskapinn, hvort sem um byrjendur eða lengra komna er að ræða. Það er alltaf gott að fá ráðgjöf og spjalla um þau verkefni sem unnið er að.

Saumavélar eru í Borgarbókasafninu í Árbæ fyrir þá sem þurfa á að halda. Tvær venjulegar saumavélar eru þar auk overlock vélar. Í saumaverkstæðinu er einnig ágætis aðstaða til að taka upp snið. Þar geta gestir því saumað frá grunni en einnig er tilvalið að koma með flíkur og annað sem þarfnast viðgerðar.

Svipaðir viðburðir

uppreisn
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar