Leiðsögn sýningarstjóra: Iðavöllur

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Hafnarhús
24, júní 2021
Opið frá: 20.00 - 21.00

Vefsíða https://listasafnreykjavikur.is/vi%C3%B0burdir/leidsogn-syningarstjora-idavollur
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Markús Þór Andrésson sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna Iðavöllur í Hafnarhúsi.
Athugið að skráning er nauðsynleg HÉR: https://bit.ly/3giwqTK
Þar sem það er fimmtudagurinn langi er enginn aðgangseyrir!
Hafnarhúsið allt er vettvangur kraftmikillar sýningar á nýjum verkum ungra listamanna sem líta má á sem leiðandi afl sinnar kynslóðar um leið og draga má ályktanir um stærra samhengi innlendrar sem alþjóðlegrar samtímalistar. Nokkuð er liðið síðan staðan var tekin á þeim hræringum sem eru í deiglunni meðal þeirra listamanna sem eru í mestum vexti og blóma á sínum ferli og endurspegla viðfangsefni og nálgun samtímans.
Sýningarstjórar: Aldís Snorradóttir, Markús Þór Andrésson og Ólöf Kristín Sigurðardóttir.

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar