Tónlistarsmiðja | Ukulele með Svavari Knúti fyrir litla og stóra

Spöngin 41, 112 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Spönginni
29, maí 2021
Opið frá: 12.00 - 13.30

Vefsíða https://www.borgarbokasafn.is/vidburdir/tonlist/tonlistarsmidja-ukulele-med-svavari-knuti-fyrir-litla-og-stora
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Aldur: 8+
Hámarksfjöldi þátttakenda: 12
Skráning á vefnum Borgarbókasafnsins.

Svavar Knútur verður með spennandi ukulele-kennslu á bókasafninu í Spönginni fyrir litla og stóra: alla fjölskylduna, frænkur, frændur og vínafólk! Svavar kennir nokkra vinsæla hljóma sem duga til að spila (og syngja) hressileg lög og sýnir að það er tiltölulega auðvelt að ná tökum á þessu hljóðfæri. Við útvegum þér hljóðfæri, en þátttakendur mega koma með sitt eigið ukulele!

Þú þarft ekki að kunna neitt á ukulele til að hafa not af námskeiðinu, en kannski áttu hljóðfæri sem safnar ryki heima? Smiðjan hentar öllum frá 8 ára upp til 88 og eldri!
Ath! Yngri en 13 ára taka fullorðinn ættingja með sér til þess að hafa meira gaman og læra á ukulele saman!

Svavar Knútur söngvaskáld hefur getið sér gott orð bæði fyrir sína eigin frumsömdu tónlist og fyrir nálgun sína á sígild íslensk sönglög. Hann hefur vakið athygli fyrir vald sitt á samspili söngs og hljóðfæris – aðalsmerki trúbadorsins – sem og skemmtilega sagnamennsku milli laga. Einlægni og hlýja ráða ríkjum í tónlist Svavars Knúts, sem þó er krydduð með húmor inn á milli.

Spennandi tilboð! Ef þér líst mjög vel á hljóðfærið í smiðjunni þá er hægt að kaupa sér eintakið á staðnum hjá Svavari Knúti!

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
uppreisn

#borginokkar