Sumarsmiðjur 13-16 ára | Tónlistarfikt

Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafn Grófinni
14, júní 2021
Opið frá: 13.00 - 15.30

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/tonlist/sumarsmidjur-13-16-ara-tonlistarfikt
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Staðsetning: Verkstæðið, 5. hæð Borgarbókasafn Grófinni.
Hvenær: 13.00 - 15.30
Fjöldi: 10

Hvernig búa stórstjörnur til vinsæl lög heima hjá sér? Hvaða forrit nota þær? Í þessari smiðju fá krakkar á aldrinum 13-16 ára tækifæri til að kynnast þessu ferli, og hvaða tæki og tól eru notuð í til þess að semja næsta smell.

Þessi smiðja stendur yfir í tvær vikur og er markmið hennar að aðstoða nemendur til að semja eigið lag eða vídeó sem verður flutt fyrir aðra nemendur námskeiðsins.

Í fyrri viku af námskeiðsins munu nemendur fá allskonar ráð og tól frá ýmsum starfandi tónlistarmönnum. Í lok vikunnar verða nemendur byrjaðir að þróa eigin stíl og búnir að ákveða hvaða stefnu þeir taka/eða hvernig þeir ætla að vinna í seinni vikunni.
Í seinni vikunni vinna nemendurnir sjálfstætt með aðstoð kennara.
Þátttakendur vinna sjálfstætt með aðstoð leiðbeinanda, sem eru tónlistarkonan Auður ásamt öðru tónlistarfólki sem verður tilkynnt síðar.

Þeir sem vilja taka með eigin fartölvu geta hlaðið niður ókeypis prufuaðgangi af flestum forritum sem notuð verða í námskeiðinu.

Fyrir nánari upplýsingar:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411-6100

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar