Barnamenning
  • Heim
  • Fréttir
  • Opnað fyrir umsóknir í viðburðapott Barnamenningarhátíðar 2023
janúar 4, 2023

Opnað fyrir umsóknir í viðburðapott Barnamenningarhátíðar 2023

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í viðburðapott Barnamenningarhátíðar 2023 og umsóknarfrestur er til 20. janúar.

Hátíðin fer fram dagana 18.- 23. apríl og að þessu sinni verður lögð sérstök áhersla á viðburði í Grafarvogi og viðburði sem tengjast friði. Við óskum einnig eftir að stofnanir MOF opni dyr fyrir sýningar á verkum barna og viðburðum á hátíðinni. 

Barnamenningarhátíð í Reykjavík er haldin í apríl ár hvert. Hún er ein af borgarhátíðum Reykjavíkurborgar og er hún orðin lykilþáttur í starfi með börnum í borginni. Vettvangur hátíðarinnar er borgin öll og fara fjölbreyttir viðburðir fram í grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum og listaskólum. Jafnframt er boðið upp á dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur, Hörpu og lista- og menningarstofnunum borgarinnar.

Barnamenningarhátíð í Reykjavík er ein af meginþátttökuhátíðum borgarinnar og rúmar hún allar listgreinar. Er hún sterkt innlegg í menningaruppeldi barna og eykur hátíðin á sýnileika barnamenningar í borgarumhverfinu. Börn og fjölskyldur geta notið dagskrár hátíðarinnar óháð félagslegri stöðu því frítt er inn á alla viðburði.

Umsókn vegna viðburðar á Barnamenningarhátíð 2023

#borginokkar