• Heim
  • Fréttir
  • Ný sýning – Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir
janúar 25, 2022

Ný sýning – Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir

Listasafn Reykjavíkur kynnir með stolti viðamikla yfirlitssýningu á verkum Birgis Andréssonar, Eins langt og augað eygir. Sýningin verður opin gestum á Kjarvalsstöðum, frá og með laugardeginum 29. janúar

Eins langt og augað eygir er fjölbreytt og umfangsmikil yfirlitssýning á verkum myndlistarmannsins Birgis Andréssonar (1955-2007) sem tekur yfir nær alla Kjarvalsstaði. Birgir var leiðandi afl í íslenskri myndlist í meira en 30 ár en féll frá langt fyrir aldur fram. Hann leitaði í brunn íslenskrar menningar, sagna, hefða og handverks þjóðarinnar og dró þar fram þætti sem hann síðan setti fram á sinn einstæða hátt í verkum sem tryggðu honum sess í íslenskri listasögu og aðdáun á alþjóðlegum vettvangi myndlistar. Sýningin veitir innsýn í áhrifamikinn feril listamannsins og tengir verk hans við innlenda og erlenda samtímalist.

Sýnd eru yfir eitthundrað verk sem koma meðal annars úr safneign Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Nýlistasafnsins og Metropolitan safnsins í New York en einnig frá innlendum og erlendum einkasöfnurum.

Sýningarstjóri er bandaríski listfræðingurinn Robert Hobbs. Ásmundur Hrafn Sturluson er hönnuður sýningarinnar. Samtímis sýningunni kemur út bók á ensku um ævistarf Birgis Andréssonar, In Icelandic Colour, en þar er að finna ritgerð eftir Hobbs með sama nafni.

Birgir Andrésson nam myndlist við Myndlista- og handíðaskólann 1973 til 1977 og fór síðan til framhaldsnáms í myndlist við Jan van Eyck Akademie í Maastricht í Hollandi 1978 til 1979. Birgir var valinn til að taka þátt í Feneyjatvíæringnum árið 1995 fyrir hönd Íslands. Verk hans hafa verið sýnd á virtum sýningarstöðum jafnt hérlendis sem erlendis og eru í opinberum safneignum og einkasöfnum víða um heim. Nýlega bættist verk eftir hann í safneign Metropolitan safnsins í New York. Sýningin nýtur stuðnings Arion banka.

#borginokkar