júní 4, 2021

Innipúkinn snýr aftur

Hátíð í Miðborg Reykjavíkur um Verslunarmannahelgina. 

Birgitta Haukdal, Moses Hightower, Bjartar sveiflur, Bríet, Emmsjé Gauti og fleiri!

Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í Reykjavík um verslunarmannahelgina. Miðasala hófst núna í hádeginu.

Margir vinsælustu tónlistarmenn landsins koma fram á hátíðinni í ár og má þar nefna Bjartar sveiflur, Bríet, Emmsjé Gauti, Eyþór Ingi, Floni, GDRN, gugusar, Hipsumaps, Mammút, Reykjavíkudrætur og Teitur Magnússon. Á opnunarkvöldi hátíðarinnar mun hin ástsæla Birgitta Haukdal og hljómsveitin Moses Hightower leiða saman hesta sína og koma fram saman í fyrsta skipti!

Forsvarsmenn Innipúkans eru afar stoltir af fjöbreyttri dagskrá Innipúkans í ár og bjartsýn á að það takist að halda hátíðina með pompi og prakt. Hætta þurfti við hátíðina með eins dags fyrirvara í fyrra vegna Covid.

Það er alltaf gott veður á Innipúkanum. Og bara gaman!

 

NÝ STAÐSETNING

Innipúkinn færir sig af Grandanum, þar sem hátíðin hefur verið haldin síðustu ár, og yfir á Ingólfsstræti. Aðaltónleikadagskráin fer að sjálfsögðu fram innandyra, í Gamla bíó og efri hæð Röntgen. Á svæðinu verður sannkölluð hátíðarstemning alla helgina enda verður nóg um að vera á götunni fyrir utan staðina sem og inni á stöðunum sjálfum. Boðið verður upp á fjölbreytta tónleikadagskrá föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld, 30. júlí-1. ágúst.

Á útisvæðinu má gera má ráð fyrir gamalreyndum púka-dagskrárliðum á borð við árlegum lista- og fatamarkaði, ásamt plötusnúðum og veitingasölu.

MIÐASALA

Miðasala á hátíðina er hafin og fer fram á tix.is. Armband á hátíðina gildir alla helgina. Einnig verður hægt að kaupa miða á stök kvöld hátíðarinnar og fara þeir miðar í sölu fljótlega. Síðustu ár hefur verið uppselt á Innipúkann - og því um að gera tryggja sér miða í tíma.

 

Miðaverð

- 3-ja daga hátíðarpassi: 8.990 kr.

- Miði á stakt tónleikakvöld: 4.990 kr. 

 

LISTAMENN SEM KOMA FRAM:

•             Allenheimer

•             Birgitta Haukdal & Moses Hightower

•             Bjartar sveiflur

•             Bríet

•             Emmsjé Gauti

•             Eyþór Ingi

•             Floni

•             GDRN

•             gugusar

•             Hipsumhaps

•             Inspector Spacetime

•             krassasig

•             Mammút

•             Reykjavíkurdætur

•             Skoffín

•             Teitur Magnússon

•             Une Misére

#borginokkar