FJALLKONAN 2018

http://www.17juni.is/sites/default/files/skjol/17_juni_2018_reykjavik-1444.jpg

 

 

Fjallkona árið 2018 er Sigrún Eddda Björnsdóttir en ávarp fjallkonunnar er eftir Lindu Vilhjálmsdóttur. 

 

í stað þess

að stilla okkur upp

á stallinum

 

köllum við saman

allar fjallkonur landsins

 

hó!

nú streymum við misvænar

niður á völlinn

 

margar

með þunga snjóköggla á kviðnum

 

             ~

 

þær fremstu

með klakakrónuna

eins og erfðarsynd á höfðinu

 

og brælan úr brennunni

stendur eins og strókur upp úr hvirflinum

 

hráblautur strigapokinn

er tekinn saman

með stolnu snæri í mittinu

 

og óvígður moldarslóðinn

hringast eins og naðra um fæturna

 

            ~

 

þær næstu

með hattkúf á höfði

 

krullur í hári

og eldrauðan varalit

 

í drappaðri dragt

eða aðskornum kjól úr gardínuefni

 

og berir leggirnir litaðir

með skóáburði frá hnéskel og niður úr

 

            ~

 

síðastar

koma druslurnar

 

stífmálaðar

í of flegnum blússum

 

of þröngum

og of stuttum pilsum

 

á of háum hælum

og of fullar í þokkabót

 

            ~

 

og þegar við höfum helgað okkur

hverja torfu á vellinum

stígum við fram

 

allar fjallkonur landsins

fullvalda og sjálfstæðar

 

#borginokkar