FJALLKONAN 2014

Valgerður Guðnadóttir var fjallkona 2014 og flutti hún ljóðið Mynd til Láru eftir Valgeir Guðjónsson.

Mynd til Láru

snemma morguns engi á
einn með vota fætur
dengir ungur drengur ljá
dýjamosinn grætur

litir jarðar lifa í sátt
logn um fjörð og grundir
fugl í lofti flýgur hátt
fiskur vakir undir

sátu hleður sigurlín
sokkaplöggin nýleg
litfríð raular lögin sín
lagleg iðin hlýleg

fullt hús matar fyllir segg
fer svo vel í munni
harðsoðið er indælt egg
úti í náttúrunni

lengi ef maður vinnur verk
verður maður lúinn
sýru vætir sopi kverk
senn er dagur búinn

rauðan málar röðull tind
rómantíkin brjáluð
augnablikið eins og mynd
sem aldrei verður máluð

 

Hlusta á Mynd til Láru sungið.

 

#borginokkar