FJALLKONAN 2011

Fjallkona árið 2011 var Vigdís Hrefna Pálsdóttir en ávarp fjallkonunnar var eftir Gerði Kristnýju.

Ávarp fjallkonu

Það bærist ekki hár

á  höfði Jóns
þar sem hann trónir
staffírugur á stöplinum
og hvessir augun
út á Tjörnina

Á hverju vori
gætir hann þess
að ungarnir komist upp
hikar ekki við
að stökkva niður
og stugga við
mávinum

Hattinum
fleygði Jón
í fugl
hefur verið
berhöfðaður síðan

Dúfa gekk undir
dúfuvæng og
bauðst til að
sækja höfuðfatið
en Jón er staðfastur
eins og karl á krossgötum
undir álfakvaki

Hatturinn er
úti í Hólma

geymir hreiður
úr stráum
dúni og
draumsýn

Örsmá eggin
óræk sönnun þess
að mesta skuldin
er alltaf
þakkarskuldin

 

 

#borginokkar