FJALLKONAN 2007

 

Fjallkona árið 2007 var Sólveig Arnarsdóttir en ávarp fjallkonunnar var eftir Þórarinn Eldjárn.

Ávarp fjallkonu

Að eiga sér stað

í staðlausum heimi
eiga þar heima
eiga heima í heimi
eins og ekkert sé.
Eiga þar
varnarþing
viðspyrnu
vé.

Að eiga sér mál
í málóðum heimi
sækja í þann sjóð
sagnir
fræði
ljóð
enn og aftur
geta ekki hætt að gruna
né gleymt að muna.

Að eiga sér fjall
í flötum heimi
eiga þar skjól
skína við sól
láta sér lynda
leik regns og vinda.

Eiga þar
mark
mið
kennileiti.

Fjall
að horfa á
inn til lands
að horfa af
út yfir haf.

Fjall
kona
karl
er allt
sem
þarf
í arf.

Það er sú þrenning
sem rímar á móti menning.

 

#borginokkar