Elliðarárdalur Park in Reykjavik
  • Heim
  • Elliðaárdalur

Elliðaárdalur

Elliðaárdalurinn er eitt stærsta græna svæðið innan þéttbýliskjarna Reykjavíkur. Hann er jafnframt eitt vinsælasta svæðið til útivistar, leikja og íþróttaiðkunar af ýmsu tagi. Dalurinn einkennist af fjölbreyttu umhverfi, landslagi og gróðurfari en þungamiðjan eru Elliðaárnar sem dalurinn er kenndur við.

Elliðaár falla úr Elliðavatni í norður og vestur milli Breiðholts og Selás- og Ártúnsholts í tveimur kvíslum. Má segja að þær skipti borginni í tvennt við Elliðaárósa. Lax gengur upp í árnar og eru þær með vinsælli laxveiðiám á suðvesturhorni landsins. Elliðaár voru virkjaðar árið 1921 og er stærsta stíflan nálægt gamla Árbæjarbænum. Í Elliðaárdal hefur verið stunduð skógrækt en þar má einnig finna fjölda náttúrulegra gróðurlenda. Fuglalíf er mjög auðugt í dalnum.

Meðal áhugaverðra staða sem eru í Elliðaárdal eða í jaðri hans eru ÁrbæjarsafnMinjasafn Orkuveitu Reykjavíkur og hesthúsahverfi Hestamannafélagsins Fáks í Víðidal.

#borginokkar