árbæjarlaug að kveldi

Árbæjarlaug

Í Árbæjarlaug er 25 metra útilaug, heitir pottar, rennibraut, barnarennibraut, barnalaug, nudd pottur, eimbað, innilaug, kaldur pottur, vaðlaug, strandblak, útiklefar, sérklefi, ungbarnaaðstaða og aðgengi í laug fyrir fatlaða. Í afgreiðslu er veitingasala, sala á sundfatnaði og frítt wifi. Margar hlaupaleiðir eru í nágrenninu.

Eimbað

Eimbað Sameiginlegt fyrir karla og konur: 15 m2

Infarauð sauna

Infarauð sauna er í kvennaklefa og karlaklefa. Saunan lokar kl. 21:00 á kvöldin.

Strandblak

Tveir strandblaksvellir voru settir upp árið 2015. 

Vatnið

Allt vatn í sturtum og laugum og pottum er hitaveituvatn. Sýrustigi vatnsins er stýrt með notkun koldíoxíðs og er því með um 7,5 pH, sem gerir það mögulegt að takmarka notkun klórs.

Leiktæki

Vatnsrennibraut: hæð brautar 5,0 m, lengd brautar 33,5 m. Vatnsrennibrautin var endurnýjuð 2015.
Önnur leiktæki: lítil rennibraut, vatnsbunur og ýmiskonar flotleiktæki.

Veitingar

Í Árbæjarlaug er veitingasala þar sem hægt er að kaupa ýmsar léttar veitingar, snyrtivörur, sundföt og fleira.

Upplýsingar um aðkomu, sérklefa, hjólastólaaðgengi, lyftur, aðstöðu við sundlaugar og potta og afslætti í sundlaugum.

Yfirlit

  • Sér skiptiklefi og sturta
  • Aðgengi án þess að þurfa að fara í almenna klefa
  • Lyfta ofan í laug
  • Hjólastólaaðgengi að pottum
  • Hjólastólaaðgengi að laug
  • Hjólastólaaðgengi að eimbaði
  • Tenging inni- og útilauga
  • Göngugrindur
  • Salerni eru staðsett í klefum, skiptiklefa og afgreiðslu

Aðkoma

Tvö P-merkt bílastæði eru við innganginn. Byggingin er á jarðhæð og engar tröppur eða þröskuldar. Það eru þrjár hurðar við aðalinnganginn og er ein þeirra með rafmagnsopnun.

Búningsklefar

Búningsklefar karla og kvenna eru nálægt afgreiðslunni. Sérklefi er til staðar á innilaugasvæði. Í öllum búningsklefum er salernisaðstaða með salernisstoðum. Það eru sturtustólar í öllum búningsklefum og í sérklefa er einnig baðbekkur.

Aðstaða við sundlaug og potta

Það er stutt í laugina frá öllum búningsklefum. Í innilaug er lyfta ofan í laugina og breiðar tröppur með handriðum. Það er opið milli inni og útilaugar og því hægt að fara á milli án þess að fara uppúr. Bakkarnir eru sléttir við jörðu við sundlaugarnar, í vaðlaug er hægt að ganga niður skáa. Ofan í pottana er farið niður tröppur og eru handrið. Pottarnir eru að hluta til með uppháum bakka og að hluta til eru þeir jafnir við jörðu.

Sérklefar

Sérklefar eru sérstaklega ætlaðir til að taka vel á móti trans fólki (og börnum), þar með talið kynsegin fólki, intersex fólki (og börnum), foreldrum fatlaðra barna og barna sem þurfa sérstaka aðstoð og eru af öðru kyni, fötluðu fólki með aðstoðarmann af öðru kyni, börnum að aðstoða foreldra sem eru af öðru kyni, fólki með heilsufarsvanda, svo sem stóma.

#borginokkar